Snilld

Ég rakst á þetta á netinu í dag og ég mæli með því að þið gefið ykkur tíma til að lesa þetta og svara eftir bestu getu ;o) Þetta er bara snilld...... tihíí.....

Fyrir neðan eru fjórar (4) spurningar og bónus spurning
Þú þarft að svara þeim strax
Þú getur ekki tekið þér þann tíma sem þú þarft og ekki svara þeim öllum um leið.
OK?

Komumst nú að því hversu klár þú ert
Tilbúin(n)?
BYRJA!!! (skrunaðu niður)

Fyrsta spurning:
Þú tekur þátt í keppni. Þú ferð framúr þátttakandanum sem er annar í röðinni.
Hvar í röðinni ert þú þá?

Svar: Ef þú svaraðir að þú sért í fyrsta sæti, hefurðu algjörlega rangt fyrir
þér!
Ef þú ferð fram úr þeim í öðru sæti, þá tekur þú sæti hans/hennar, þú ert í
öðru sæti!

Reyndu nú að klúðra ekki næstu spurningu
Til að svara annarri spurningu, reyndu að taka ekki eins mikinn tíma og í
þeirri fyrstu

Önnur spurning:
Ef þú ferð fram úr þeim er síðastur í röðinni, ert þú í....?

Svar: Ef þú svaraðir að þú sért næst síðust/síðastur, hefurðu rangt fyrir þér
aftur. Hvernig er hægt að fara fram úr öftustu manneskju?

Þú ert ekki góð(ur) í þessu! Rétt ?

Þriðja spurning:
Mjög vandasamt dæmi! Athugaðu: Þú mátt aðeins leysa það í huganum.
Ekki nota pappír eða reiknivél. Reyndu.

Taktu 1000 bættu við 40. Bættu svo við 1000. Síðan bætirðu við 30 og svo 1000.
Bættu við 20 og svo 1000 og að síðustu bætirðu við 10. Hver er útkoman?

Svar: Fékkstu út 5000?
Rétt svar er reyndar 4100.
Trúirðu því ekki? Prófaðu dæmið með reiknivélinni þinni!

Þetta er ekki þinn dagur eða hvað? Kannski þú hafir síðustu spurninguna rétta?

Fjórða spurning:
Pabbi Maríu á 5 dætur: 1. Nana, 2. Nene, 3. Nini, 4. Nono.
Hvað heitir sú fimmta?


Svar: Nunu?
NEI! Auðvitað ekki. Hún heitir María. Lestu spurninguna aftur

Jæja, bónus spurningin:
Það er mállaus manneskja sem ætlar að kaupa tannbursta. Með því að sýna
tannburstun með látbragði tekst henni að koma afgreiðslufólkinu í skilning um
hvað hún vill og kaupir tannburstann.
En ef það er blindur maður sem vill kaupa sólgleraugu, hvernig ætti hann að tjá
ósk sýna?



Svar: Hann þarf bara að opna munninn og óska eftir því sem hann vill, svo
einfalt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Djöfuls dullan

ohhhhh alveg glatað ég féll á þessu:S

Djöfuls dullan , 22.4.2006 kl. 10:54

2 identicon

Darn, var að dúksa á öllu en klikkaði svo á bónus spuringunni :) þarf hann nokkuð á gleraugum að halda ;)

Óskar (IP-tala skráð) 22.4.2006 kl. 11:06

3 identicon

haha ok kannski ruglandi og villandi en ef maður les spurningarnar vel og spáir i þeim er þetta ekkert mál klikkaði að visu á pabba mariu hehe

gulli (IP-tala skráð) 22.4.2006 kl. 11:15

4 identicon

ohh ég klikkaði á dæminu:(
Enn annars gat ég
HÚRRA

Gurra geggjaða:D (IP-tala skráð) 22.4.2006 kl. 15:15

5 identicon

Ég gat fyrstu og svo klúðraði ég þessu öllu

Bolla (IP-tala skráð) 22.4.2006 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband