Var mamma þín vond? Mín var Það !
Við áttum verstu mömmu í heiminum! Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í morgunmat fengum við hafragraut.
Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við samlokur.
.Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í kvöldmat,allskonar MAT. Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF,það hefði mátt halda að við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir okkar og hvað við vorum að gera með þeim. Hún krafðist þess ef við segðumst ætla að fara eitthvað í klukkutíma þá væri það aldrei meira en klukkutími.
Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna. Við að þvo diskana, búa um rúmin, læra að elda ,þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg störf. Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til að pæla út hvað hún ætti að láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert nema sannleikann.Þegar við vorum unglingar, gat hún lesið hugsanir okkar. Þá var lífið ERFITT!
Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16.ára. Mömmu vegna misstum við af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkkar gerðu. Ekkert okkar hefur verið tekið fyrir að stela úr búðum,eyðileggja fyrir öðru fólki eða verið tekið fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi. ALLT henni að kenna. Við urðum aldrei full,kunnum ekki að reykja, fengum ekki að vera úti allar nætur og misstum því af að gera svo fjölmargt sem unglingar annars fá að gera.
Á sunnudögum þurftum við að fara í kirkju, og misstum aldrei af messu. Núna erum við flutt að heiman. Guðhrædd, menntuð og gott fólk.Við gerum okkar besta að vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var. Ég held að það sé það sem er að í heiminum í dag.Það er bara ekki nóg af vondum mömmum lengur.
Úffff mikið er ég glöð að mamma mín er ekki sona hræðileg
Flokkur: Bloggar | 30.10.2006 | 18:34 (breytt kl. 18:54) | Facebook
Könnun
Tenglar
mála
Vinir
DRAUGASÍÐUR
hmmmmm
- ehhvað soona óskiljanlega töffaða íslenskan skilj!;)
- skemmtilegir leikir
- greindavísitölupróf og fl. próf
- bara fyrir stelpur og homma og kanski líka gagnkyn
hitt og þetta
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábær texti og svo satt, en þetta síðasta "úfff mikkið... " á það að vera með?
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.10.2006 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.