AF HVERJU???????????????????????????

Heilinn minn er að springa núna:(
ég verð bara að skrifa núna mér líður þannig:( puttarnir á iði og ég veit ekki hvað ég á að gera. Meina það er hægt að brosa framan í heiminn og vera glaður og sáttur við alla sem maður talar við, það er hægt að segja við alla "halló mér líður æðislega vel í dag" En er það bull hvað er málið? af hverju eru sumir dagar bara kvöl og pína? af hverju líður manni ekki bara alltaf vel?

 Stundum finnst mér eins og það suði allt í hausnum á mér ég finn fyrir því núna,ég er kannski bara klikkuð, en hverjum er sosum ekki sama um það því ég er bara stelpa sem veit ekki hvað hún vill gera.


Já fullt af spurningum hjá mér í kvöld. En það er oft svo erfitt að útskýra af hverju mann líður illa því stundum veit maður það ekki sjálfur.
En það er hægt að brosa og er það ekki einmitt það sem maður á að gera bara brosa í gegnum lífið?


Úfff AF hverju veit ég það ekki? Af hverju er ég ekki í skóla? Af hverju er ég ekki að gera eitthvað í lífinu sem gerir eitthvað fyrir mig?


En jamm hætta þessu væli Jóa það er ekkert að þér. Þetta vill ég segja við mig núna, En vitið að mér líður ekkert sollis núna, núna vill ég gera eitthvað klikkað eitthvað bara eitthvað.

Urr ok ég er hætt þessu væli ég verð að hætt að að hugsa svona.


ÉG er SÆT og SKEMMTILEG stelpa:)
Já en stundum þá setur maður svona niður á blað og setur það svo bara í ruslið.


En kannski bara gaman að lesa seinna hvað ég var að hugsa.
Kannski ekki en kannski.


Bara fyrir þá sem lesa þetta þá er ég ekki alltaf hress og skemmtileg,ég er bara mannleg og ég á mína slæmu daga og þeir koma ekki vel út alltaf. En kannski ég hætti þessu núna.
En eitt í lokinn bara til að lífga mig upp aftur.


ég er að hugsa um að fara í næstu ungfrú ísland keppnina. ég er svo flott það segja allir.

Var þetta ekki hressandi:D

En jæja mín dama ætlar að skreppa pínu út:)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrst og fremst: Lífið er ekki bara gott og gaman!!!!
Þó við myndum allir vilja það.....það er bara ekki þannig.
Lífið er líka að finna til, að verða fyrir eitthvað vont og óskemmtilegt og jafnvel eitthvað skelfilegt. Lífið er líka að líða illa, að gera misstök, að vera óhaminghjusöm. Allir eiga góða og slæma tíma í lífinu sínu þó ekki vilji allir viðurkenna það. Sumir fá meira sársauka en aðrir en við fáum öll góðar og slæmar lífsreynslur.
Og já það er gott að vera jákvæð og brosa en ekki þarf að skammast fyrir að sýna tilfinningar og að sýna hvernig maður liður. Það er ekki aumingjaskapur að viðurkenna og að sýna að maður liður illa. Það er bara eðlilegur hluti af að vera til, af að vera manneskja.
Ekki erum við allir eins. Ekki eru allir vinir þínir eins þó við eigum það sameiginlegt að vera vinur þinn.
Gleymdu ekki að þú átt vini þar sem þú getur talað við um ALLT og þar sem þú getur tjáð dýpstar tilfinningar þínar. Traustir vinir sem þykja vænt um þig og sem vilja deila sorg og gleði með þér.
Þú ert vinkona mín af því að þú ert góð og skemmtileg stelpa og mér finnst gott að eiga vinkonu sem sýnir mér það ef hún liði illa. Ekki vildi ég vinkonu sem gerir sér bara upp eins og allt væri fínt og í góðu á meðan það sé ekki raunveruleikinn.

Rónald (IP-tala skráð) 9.4.2006 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband